Helgamaria's Blog

Just another WordPress.com weblog

Snerti botninn…. ágúst 12, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 7:39 pm

…. Í kjána hrolli í dag.

Svínaflensan er komin til Geilo, var það gestur Dr. Holms hotel sem “bar hana til okkar” .   Á hotelinu hefur verið gripið til smá ráðstafanna.  Spjöld utum allt til að ítreka við stafsfólk að þvo sér um hendurnar svona sirka 1000 á dag og nota “antibakteria” vökva.  Og nota hanska við svona nánast allt sem við gerum.  EN í dag var nýjum víddum ná í stressinu.   AndlitsMASKAR.  Þið vitið svona eins og tannlæknar nota.  Eliza  (yfirmaður minn og vinkona)  rétti með einn kassa af þessu í dag og sagði mér að nota þetta sem oftast, og alltaf ef ég þyrfit að þrífa klósett.  hhaaaauuuuuu NEI takk, þá fæ ég frekar svínaflensu, fer ekki að láta fólk sjá mig með þennan VIÐBJ’OÐ…….. Þetta er alveg botninn í hallærisleg heitum;)

 

Á morgun er dagurinn….. ágúst 8, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 5:22 pm

Eftir   góðan árangur í ræktinni og hlaupum   í vor var ég komin í hið þokkalegasta form þegar ég fór til íslands……… EN nuna hins vegar er ég alveg í ruglinu.  Hef ekkert farið að hlaupa síðan ég kom frá íslandi og mataræðið jhaaaa skulum segja að  “gras og baunir”  hafi alveg verið lagt á “hilluna”   Rassinn á mer hristins eins og fínasti buðingur við minnst hreyfingu og  “bingovöðvarnir” verða sífelt  “síðari”………… Ekki gott mál.

‘A morgun verður hisvegar breyting,  spandexið verður tekið fram aftur og þið hefðuð átt að sjá svipinn á elskulegum sambýlingi þegar ég tilkynnti hátíðlega að á morgun hæfist gamanið aftur……….:)

Annars erum við bara góð, fegum okkur þetta fína sjónvarp í gær,  það var vígt við hátíðlega athöfn í gærkveldi.   Ég   guffaði í mig massa mikið af snakki og sukkulaði til að fagna komu tækisins;)

Börnin eru líkt og foreldranir nánast flutt á Holms…… þegar mikið er að gera á stóru heimili er ekkert annað að gera en að taka börnin með;)

Sjitt er held ég alveg buin að týna “blogg hæfileikanum” ……… alveg glötuð

 

Ógeðslega 2005 ágúst 4, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 6:09 pm

Ákvað að gerast ógeðslega 2005 og byrja að blogga aftur……..

Af  okkur er það helst AÐ……… Tristan Alex er að byrja í skóla 19.águst,  hann er  orðinn verulega spenntur yfri þessu öllu, en ég er hinsvegasr komin með nettan niðurgang af stressi:)  Er bara engan veginn tilbuin undir þetta og fæ bara tár í augun við tilhugsunin eina…… ekki gott.  ENNN þetta hlýtur nu að reddast einhvern veginn.

Kappinn er orðin alveg læs á íslenskuna og vantar bara smá upp á að norskan sem komin líka.  Bara flottur;)

Bríet Eva stefnir á heimyfirráð og æfir sig mikið á öðrum heimilsmeðlimum….. ákveðin ung dama hér á ferð,  á heilan bugarð af dýrum í huganum og stjórnar og elur þau upp efitir sínu höfði;)  Þess á milli talar hun í símann í “þykjó”;)  Mikið að gera yfrileitt hjá henni;)

Eg sjálf sagði svo upp minni vinnu á Holms og 1. sept ætla ég flytjast í morgunmat og á kaffihusið…… sjáum til hvort þjónninn í mér sé enn til :/

Sverrir tekur svo við enn hærri stöðu 13 águst, kappinn orðinn  “restaurantsjef”  ætil það myndi ekki utleggjast með  veitingastjóri á íslandi, að minnsta kosti nálagt því.  Og  hurra með nýrri stöðu fylgjir enn meiri skrifstofu og stjórnuna vinna og þar af leiðandi minni kvöld og helgarvinna;)   JIBBI KÓLA sko;)

Held að þetta se sko barast fínt í fyrstu umferð, held ég  eigi algjörlega eftir að “meika´ð” á þessari síðu;)

Kossar

 

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.