Helgamaria's Blog

Just another WordPress.com weblog

….. september 30, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 8:15 pm

…. Skellti mér í yndælisbæjarferð í dag, Inga þýsk vinkona mín bauð mer  í dömuferð. Reyndar var hann Bjössi litli með í för, hann er 10 mánaða luxuskarl. Draumabarn sem heyrðist ekki í alla ferðina og takið eftir, nöldraði ekkert þó við værum lengi að skoða;)

‘i þessari bæjarferð fann ég mer snjóbuxur, þær eru svo viðbjóðsljótar  að ég verð að eignast þær.  Bleikar og fjólublára Burton buxur með svona vasakluta mynstri………… bara töff;)    Fer á föstudaginn og splæsi í þær.

Var komin á ágætis skrið í ræktinni, en þá fekk ég i bakið…. svekk. En er vonandi að koma til. Er amk betri í dag en í gær……. reyndar með hjálp bólgueyðandi í spjaldavís en pillur hafa engann drepið…… vona ég ;) heheh

En síðast þegar ég fór í  ræktina þá var einmitt aftur gaur sem “lyfti með hljóðum”   SJitt hvað ég á alltaf bágt með að springa ekki ur hlátri, veit fólk virkilega ekki hvað þetta er hallærislegt????

Er í viku frí í vinnunni, djöfull er það kósi. Verð að viðurkenna að  ég  þjáist af “nettri einhverfu” þegar kemur að vinnunni.  Á pínu bágt að vinna með fólki sem  hefur ekki sömu rutínu og ég….. OG það sem angrar mig mest er að ég ÞOLI EKKI HÁLFVITA og það vinna nokkrir svoleiðis á Holms..;)    En ég á svakalega flott “gervibros” og “gerviumburðarlindi” nota það þegar ég er að komast í þrot.     Ætla ekki einu sinni að byrja að ræða gesti með sérþarfir…… það kemur síðar í löngu bloggi;)

Annars bara hils í bili

 

Klárlega “vinnari” september 21, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 7:15 pm

Í dag skulum við klappa fyrir mér……Hlunkaðist loskins í ræktina eftir einungis 3ja mánaðafrí, ekki langt frí það;)

Kom sjálfri mér nokkuð á óvart, þolið var betra en ég bjóst við, en hnéin mikið verri en ég vonaði. En þau skána með betra formi;)

Í ræktinni í dag var ógeðiskall, svona 50+ en hjélt að hann væri 20-. Geðveikt perralegur með litað kolbikasvart hárið, sem “notabene” leit ut eins og forljót hárkolla.   Alveg “hrollurogæl” á sama tíma.  Og svo var hann einn af þeim sem másaði og blés eins og hann væri alltaf að lyfta 100 kíloum, gat nu ekki séð betur en ég væri að lyfta þyngra en hann…….. og ekki var það þungt;)   Og svo var hann ekki einu sinni  sveittur……. ekki það að ég hafi e-ð verið að fylgjast extra mikið með kallgreyinu, nei nei;)

Ætla að fara aftur á morgun, hvíla á miðvikudag og svo ætlar vinkona mín að byrja með mér á fimmtudaginn í spinning.  Við stefnum á að vera heitustu tveggja barna mömmurnar á ströndinni í sumar;)

Annars vildi ég ekkert nema að monta mig af því að vera byrjuð að æfa aftur;)

Kossar

 

það er bara svoleiðis….. september 16, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 4:16 pm

….. þar sem ég hata turista er ég alveg á hárréttum stað svona vinnulega séð;)      Í dag var hádegisverðar ruta.  Í kringum 100 mann, og hlaðborð sem þýðir að það þarf að hreinsa MARGA diska.   En það sem þetta voru bara ómerkilegir bretar þá voru þeir settir inn i sal sem heitir Gallerýið  ( sigurbjörg þu ert amk með á nótunum hér)

   Inní Gallerýinu er  þröngt á milli borða. ‘Eg,  með fullar hendur af ´diskum er að troða mér á milli stóla.   Setur ekki einn kallinn stólinn aðeins ut og vitið menn, ég sit FÖST með rassgatið  yfir stórbaks-bríkinni að aftan og ístruna undir stórbaks-bríkinni að framan. OG nánast buin að leggja brjóstinn á axlirnar á kallinum fyrir framan mig.  Ekki að gera gott mót þarna HELGA;)

   Í 2 sek  munaði minnstu að ég bilaðist ur hlátri, svo varð ég örvæntingarfull í aðrar 2 sek.  Náði að “hósta” uppur mér  afsökunarbeiðini á ensku og bað kallhelvítið viðsamlegast að færa stólinn aðeins.  Sem betur fer varð hann við þeirri beiðni minni;)

 

Í dag var étið salat í hádeginu, byrja í spinning á föstudaginn……………….;)

 

Kossar

 

Og komasvooo…. september 12, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 1:00 pm

…… Lofaði minni kæru Guðný Þóru bloggi í dag, hun liggur og á að hvíla sig….. eins gott að hun fari eftir því…… en og lofaði ekkert skemmtilegu bloggi hehehe;)

Er bara nokkuð brött.   Hef ekki enn náð   “neyðarhringingar lausum”  degi í vinnunni.   EN náði því stór afreki í gær að gera 3 færslur i kortakerfinu og kluðraði þeim öllum. Allt á innað við klukkutíma.  Geri aðrir betur;)

Af ” hollt liferni eftir íslands ferð”  er allt ömulegt að frétta, hef farið í einn hlaupa tur og er ekki enn byrjuð í ræktinni aftur.  Borða óhollt og drekk kók, eins og fá borgað fyrir það.   Allir hressir með það bara;)

TAL snillingur;     Við hjónaleysin voru að tala saman í gær, ég var að pirra mig á einstaklega heimskum vinnufélögum.  Yfirleitt tölum við saman á ensku þegar við tölum um vinnuna.  Með læddist eitt blótyrði á sænsku. Ekki datt mér í hug að barið skildi það……EN það heyrðist afturí   “Sko það er alveg bannað að segja   svona það er alveg jafn ljótt og að segja “sjitt” og það er mjög ljótt”    Ekki veit ég hvernig barið vissi af þessu sænska blótyrði og enn síður veit ég hvernig hann vissi að sjitt væri alveg “nono” orð.   Greinilega margt sem lærist í skólanum;)

Sverrir var sendur á foreldrafund í leikskólanu í vikunni, kom heim sem formaður foreldrafélagsins.  Hef  hér með sameinað   ” supermömmustiga” reikninginn minn  ( sem var hvort sem er að verða tómur)   í  “superFORELDRAsiga” reikning.  Held að hljóti að fást gomma af stigum fyrir að vera í formaður í foreldrafélagi heheheh;)    Svo nu eru bara unnar kjötvörura alla dag ………….. eða þannig;)   Það er svo foreldrafundur fyirr 1 bekk í næstu viku,  held ég fari sjálf þangað……. eða kenni Sverrir að segja NEI, og sendi hann svo;)

Vá er buin að bulla svo mikið, en Guðný amk skilur hvað er djók og hvað ekki;)

EN eitt í lokinn

” Það er þitt að setja mörkin, annara að virða þau”

PS kvittið mín kæru sem villast hér inn

 

Ekki að gera gott mót….. september 5, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 7:15 pm

…. hvorki sem bloggari né  “supermamma”

Hætt í þrifum og farin að vinna á kaffihusinu og i morgunmat þegar ég finn mér ekkert að gera niðri í kaffinu;)  Alveg ágætt svo sem, en  stundum fer  “exel”  sálin mín “á hliðina”  :/  EN þeim stundum fer fækkandi;)

Gráu hárunum á Sverrir hefur reyndar fjölgað töluvert á þessum 4 dögum sem ég hef verið undir hans stjórn.  Hef hringt nokkur “neyðarsímtöl” til hans sem hafa verið mjög settleg  td.  “Sverrir viltu koma nuna STRAX, er alveg buin að rusta tölvukerfinu”  og annað dæmi   “Sverrir  FLJ’OTuRRR, er  alveg buin að “skíta” uppá bak” ;)   EN þetta er allt að koma, þurfti bara að hringja einu sinni í hann í gær, og stefni á hringingalausan dag á mánudaginn hehehe;)

Er ss. komin í nánast 100% stöðu, og OMG heimilið er í rust og börnin mín átu unnar kjötvörur 2 daga í röð og TAL sendur einn dag að leika við vin sinn fram yfir  kvöldmat og BEL greyjið tekinn með í vinnuna og látin huka inn á skrifstofu í 2 tíma……… saxast hratt á “supermömmu stiginn”.  Vona nu að heimilið fari að komast í betri takt og kanski að Sverrir fari að sjást meira hérna heima.  Svona meir en bara rétt yfir blánóttina….;)

TAL er að gera góða hluti í skólanum, finnst heimalærdómurinn heldur ómerkilegur, en við erum dugleg að láta hann lesa extra og gera verkefni í íslenskum skólabókum;)  Hann er byrjaður í ensku, fótbolta, og vonandi byrjar dansinn fljótlega. Og svo tónlistarskólinn en þar er hann á biðlista;)

BEL er alsæl á leikskólanum, okkur finnst hun “plumma” sig betur á leikskólanum eftir að TAL hætti þar. ER meira sjálfstæð, ( ef það er hægt;)) og hefur farið gríðarlega fram í tali.  Endalaust flott stelpan okkar;)

Sjálf hef ég verið e-ð hálf “aum” í allt sumar og haust, verið löt og hálf orkulaus.

Langar heim til íslands aftur í smá frí.  Sumari var ju “töff” og ég bara engan veginn tilbuinn til að kveðja elsku ömmu og afa.    Er ju glöð að hafa fengið að  hitta ömmu hressa áður en hun veiktist, og fengið að sitja og halda í hendina á henni þegar hun kvaddi……En mig vantar bara svo mikið að geta hringt í hana þegar lífið snyst ekki á mínu tempoi,  spjalla, fá ráð, og bara hlægja ja eða gráta í símann;)   Auðvita spjalla ég enn við hana, hun reyndar svara með ekki í orðum,  en ég finn stundum lyktina hennar;)  Æji kanski er alveg sama hvað maður verður gamall,  maður verður alltaf litla stelpan hennar ömmu…..

Þegar ég er ekki “aum” þá er ég gríðarlega þakklát fyrir að hafa átt heimsins bestu ömmu og afa, 2 sett af frábærum einstaklingum;)

Best að hætta þessum “aumingjaskap” og koma barninu í rumið,  kem með uppdeit mjög fljótlega hvernig gengur í nýja jobbinu;)

Ást og kossar  til ykkar

 

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.