…. hvorki sem bloggari né “supermamma”
Hætt í þrifum og farin að vinna á kaffihusinu og i morgunmat þegar ég finn mér ekkert að gera niðri í kaffinu;) Alveg ágætt svo sem, en stundum fer “exel” sálin mín “á hliðina” :/ EN þeim stundum fer fækkandi;)
Gráu hárunum á Sverrir hefur reyndar fjölgað töluvert á þessum 4 dögum sem ég hef verið undir hans stjórn. Hef hringt nokkur “neyðarsímtöl” til hans sem hafa verið mjög settleg td. “Sverrir viltu koma nuna STRAX, er alveg buin að rusta tölvukerfinu” og annað dæmi “Sverrir FLJ’OTuRRR, er alveg buin að “skíta” uppá bak”
EN þetta er allt að koma, þurfti bara að hringja einu sinni í hann í gær, og stefni á hringingalausan dag á mánudaginn hehehe;)
Er ss. komin í nánast 100% stöðu, og OMG heimilið er í rust og börnin mín átu unnar kjötvörur 2 daga í röð og TAL sendur einn dag að leika við vin sinn fram yfir kvöldmat og BEL greyjið tekinn með í vinnuna og látin huka inn á skrifstofu í 2 tíma……… saxast hratt á “supermömmu stiginn”. Vona nu að heimilið fari að komast í betri takt og kanski að Sverrir fari að sjást meira hérna heima. Svona meir en bara rétt yfir blánóttina….;)
TAL er að gera góða hluti í skólanum, finnst heimalærdómurinn heldur ómerkilegur, en við erum dugleg að láta hann lesa extra og gera verkefni í íslenskum skólabókum;) Hann er byrjaður í ensku, fótbolta, og vonandi byrjar dansinn fljótlega. Og svo tónlistarskólinn en þar er hann á biðlista;)
BEL er alsæl á leikskólanum, okkur finnst hun “plumma” sig betur á leikskólanum eftir að TAL hætti þar. ER meira sjálfstæð, ( ef það er hægt;)) og hefur farið gríðarlega fram í tali. Endalaust flott stelpan okkar;)
Sjálf hef ég verið e-ð hálf “aum” í allt sumar og haust, verið löt og hálf orkulaus.
Langar heim til íslands aftur í smá frí. Sumari var ju “töff” og ég bara engan veginn tilbuinn til að kveðja elsku ömmu og afa. Er ju glöð að hafa fengið að hitta ömmu hressa áður en hun veiktist, og fengið að sitja og halda í hendina á henni þegar hun kvaddi……En mig vantar bara svo mikið að geta hringt í hana þegar lífið snyst ekki á mínu tempoi, spjalla, fá ráð, og bara hlægja ja eða gráta í símann;) Auðvita spjalla ég enn við hana, hun reyndar svara með ekki í orðum, en ég finn stundum lyktina hennar;) Æji kanski er alveg sama hvað maður verður gamall, maður verður alltaf litla stelpan hennar ömmu…..
Þegar ég er ekki “aum” þá er ég gríðarlega þakklát fyrir að hafa átt heimsins bestu ömmu og afa, 2 sett af frábærum einstaklingum;)
Best að hætta þessum “aumingjaskap” og koma barninu í rumið, kem með uppdeit mjög fljótlega hvernig gengur í nýja jobbinu;)
Ást og kossar til ykkar
æðislegt að lesa bloggið þitt Helga mín….ég bæði flissaði&grét:);(
æi elsku stelpan mín;) þú ert að standa þig rosalega vel og það er 200% það að vera í fullri vinnu með tvö ung börn. Svona ef þú ferð að velta fyrir þér námi þá myndi ég benda þér á að skoða fjölmiðlafræði. Yrðir góður pistlahöfundur
knús í bæinn…ekki auðvelt að vera langt í burtu á dögum eins og í dag og get trúað það hafi verið sæmilega “töff” en dagurinn heima var líka “töff” þrátt fyrir að hafa getað hitt allt fólkið. Átti að skila bestu kveðjum til ykkar…
knús í bæinn aftur…
hæhæ, tár og snökt og allt það meðan ég las, hugsaði til þín í gær, maður verður bara að bíta á jaxlinn, segir jaxlinn sjálfur, góður þessi, ætlaði bara að kvitta, er alveg tóm í fréttum, knús knús til ykkar.
sko ég er löngu búin að commenta á þessa yndislegu færslu … hvert fór það comment eilega!?!?!
…jæja bíð spennt eftir nýrri.
og það er gott að gráta og hlæja og ömmulykt er bezt!
lovjú:*
Já þetta er skrítið að geta ekki lengur hringt í ömmu í stutt eða langt spjall,en við erum þó svo heppin að eiga 3 stykki af bestu foreldrum í heimi……..