Helgamaria's Blog

Just another WordPress.com weblog

Klárlega “vinnari” september 21, 2009

Filed under: Uncategorized — helgamaria @ 7:15 pm

Í dag skulum við klappa fyrir mér……Hlunkaðist loskins í ræktina eftir einungis 3ja mánaðafrí, ekki langt frí það;)

Kom sjálfri mér nokkuð á óvart, þolið var betra en ég bjóst við, en hnéin mikið verri en ég vonaði. En þau skána með betra formi;)

Í ræktinni í dag var ógeðiskall, svona 50+ en hjélt að hann væri 20-. Geðveikt perralegur með litað kolbikasvart hárið, sem “notabene” leit ut eins og forljót hárkolla.   Alveg “hrollurogæl” á sama tíma.  Og svo var hann einn af þeim sem másaði og blés eins og hann væri alltaf að lyfta 100 kíloum, gat nu ekki séð betur en ég væri að lyfta þyngra en hann…….. og ekki var það þungt;)   Og svo var hann ekki einu sinni  sveittur……. ekki það að ég hafi e-ð verið að fylgjast extra mikið með kallgreyinu, nei nei;)

Ætla að fara aftur á morgun, hvíla á miðvikudag og svo ætlar vinkona mín að byrja með mér á fimmtudaginn í spinning.  Við stefnum á að vera heitustu tveggja barna mömmurnar á ströndinni í sumar;)

Annars vildi ég ekkert nema að monta mig af því að vera byrjuð að æfa aftur;)

Kossar

 

5 Responses to “Klárlega “vinnari””

  1. Didda frænka segir:

    já góð Helga mín, knús og kram til ykkar.

  2. Dísa segir:

    gottmeððig ! maður verður nú að vita hverjir eru með manni í ræktinni…heheh ég t.d æfi með slökkviliðinu sko ! ekki amalegt það…hmmmmm mis amalegt amk ;) eða sko þegar ég nenni að mæta ;)

    knús á línuna

  3. ella segir:

    Segðu Hrollinum bara að haga sér eins og fólk og stynja minna og svitna meira. Fólk á ekki að komast upp með það að vera öðruvísi.

  4. Didda frænka segir:

    hæhæ öll sömul, nú er ég að spá í að fara til Bolungarvíkur á morgun í skírnina, það er víða verið að skíra, í Grímshúsum og í Nesi og á Reykjarhóli svo eitthvað sé nefnt, annars er allt í rólegheitum, fer að koma að sláturgerð, jæja það er best að fara að setja einhverjar spjarir í tösku, bestu kveðjur og knús til ykkar.

  5. Jóa Sig. segir:

    Blessuð Helga mín

    Hef ekki kíkt lengi á ykkur en þvílíkt endemis andsk&(% snilld er að lesa bloggið þitt;) Sammála Erlu með fjölmiðlafræði, yrðir alveg maddnaður pistlahöfundur;*
    Ég er nú búin að lesa ALLAR færslurnar og ég sé þig alveg fyrir mér…….með maskann, hanskana, skoðandi og hlustandi á hrollinn í ræktinni, klárlega bara fyndið.
    Ég mun pottþétt líta hér inn agglavega svona annað veifið og skal reyna að standa mig í kvittinu;*

    Bestu kveðjur til ykkar allra
    Jóa, Kristján og grísirnir 3;*


Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.